24.05.2026 12:49
Starfið, félagsmál og fjölbreytt hreyfing
Vikurnar 23. febrúar - 7. mars liðu hratt við fjölbreytt verkefni. Kennarastarfið í Menntaskólanum á Tröllaskaga í aðalhlutverki sem fyrr. Alltaf skemmtileg og áhugaverð verkefni þar og í byrjun mars var miðannarvikan þar sem starfið er brotið upp og nemendur sinna öðrum verkefnum en vanalega. Alltaf fjör í þeirri viku og endað var með ferð á Akureyri þar sem m.a. var farið í klifur og á skauta. Í vikunni áður var einnig skíðadagur hjá skólanum svo nemendur sem kennarar, sem vildu, feng fjölbreytta hreyfingu.
Félagsmálin fengu einnig sinn tíma að venju. Fundur hjá stjórn Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar og svo formannafundur í sama félagsskap þar sem farið er yfir ýmis mál sem íþróttahreyfingin í Fjallabyggð er að fást við.
Frúin fór í skíðaferð til Noregs með vinkonum og ég reyndi að vera duglegur að hreyfa mig á meðan og sinna ýmsum skrifum. Engin framkoma á tónlistarsviðinu að þessu sinni og ágætt að fá smá hvíld eftir góða þorrablótstörn.
Mynd - Skíðadagur í MTR
![]() |

