Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

16.08.2025 20:00

Ljóðasetrið og æskuslóðirnar

Fyrsta vikan í júní var nokkurn veginn tvískipt. Fyrri part vikunnar var verið að lenda eftir skólaveturinn og huga og orku beint m.a. að Ljóðasetri Íslands sem ég setti á fót árið 2011 og hef rekið siðan. Var að sinna ýmsum málum þar sem og á heimili og í garði. 

Á fimmtudegi brunuðum við Stína mín vestur á Bíldudal, æskuslóðir mínar. Gistum hjá pabba í æskuheimilinu, Birkihlíð, og hittum einnig fyrir Kristínu systir, Nonna hennar mann og fleiri afleggjara þeirra. Áttum mjög góðar stundir saman. Við Nonni hresstum upp á pallinn hjá pabba, það var ekki vanþörf á, og svo tókum við öll þátt í að taka garðinn hjá kallinum í gegn. Svo var að sjálfsögðu farið í kirkjugarðinn til að kasta kveðju á elsku mömmu.

 
Flettingar í dag: 222
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 727
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 161077
Samtals gestir: 32125
Tölur uppfærðar: 17.8.2025 06:52:36