02.04.2026 16:59
Þrjú þorrablót á einni viku
Vikan 19. - 25. janúar einkenndist af því að Þorrinn var að ganga í garð. Nóg um að vera næstu vikurnar hjá okkur spilafélögunum Stulla og Tóta og byrjað með trukki því við spiluðum á hvorki fleiri né færri en þremur þorrablótum þessa vikuna. Á fimmtudagskvöldi á dvalarheimilinu Hornbrekku á Ólafsfirði þar sem var einstaklega góð stemning. Á föstudegi var haldið í Bárðardal og spilað fyrir sprellfjörugum dansi þar um kvöldið auk þess sem við sáum um fjöldasöng. Þetta var þvílíka fjörið og einn magnaðasti fjöldasöngur sem ég hef heyrt, svei mér þá. Á laugardeginum var svo haldið út á Tjörnes þar sem áfram var haldið; fjöldasöngur milli fjölbreyttra skemmtiatriða og svo spilað fyrir dansi fram á nótt. Það var gott að hvíla röddina á sunnudeginum!
Auk þess var kennslunni að sjálfsögðu sinnt og haft gaman af lífinu. Fyrsta karlakórsæfing ársins var líka á dagskrá og eitt og annað fleira skemmtilegt.
Mynd: Stulli og Tóti á Trilludegi á Sigló
![]() |

