08.04.2026 09:20
Þorrablót, kennsla og fjölskyldan
Vikan 26. jan - 1. feb var ljómandi góð að mestu, náði mér að vísu í kvefpest sem hafði áhrif á sönggetuna, annað gott. Kennslan í Menntaskólanum á Tröllaskaga gengur að óskum; alltaf einhver spennandi verkefni þar að fást við. Auk kennslunnar skrifa ég fréttir á heimasíðu skólans, sé um menningarmál og fleira skemmtilegt. Svo var eitt og annað skrifað og skráð m.a. fréttir í Helluna, héraðsfréttablað hér í Fjallabyggð, og fréttir á fésbókarsíður verkefna sem ég tengist.
Þetta var líka góð fjölskylduvika. Einkasonurinn, Patrekur, átti 29 ára afmæli og svo kom yngsta dóttirin, Amalía, og kærasti hennar í heimsókn á Sigló og gistu hjá okkur yfir helgina. Frúin byrjaði með Krílaskóla fyrir yngstu skíðaiðkendurna á skíðasvæðinu og Amalía aðstoðaði. Báðar eins og ballettdansarar á skíðunum!
Við Stulli lékum aðeins á einu þorrablóti þessa viku, en þau voru þrjú í vikunni á undan, að þessu sinni í Skagaseli út á Skaga. Þar sáum við um fjöldasöng milli skemmtiatriða og svo lékum við fyrir dansi fram á nótt. Vegna kvefpestarinnar var röddin frekar tæp og Stulli þurfti að syngja mun meira en venjulega en hann komst vel frá því kallinn. Heilmikið stuð á dansgólfinu að venju og að loknum dansleik var pakkað saman og rennt heim. Veðrið eins og best verður á kosið og var snjókorn á vegum á miðjum þorra, líkt og síðustu tvö ár.
Frúin dansar á skíðum
![]() |

