29.05.2026 18:21
Böll sunnan og norðan heiða
Vikurnar 8. - 22. mars liðu hratt, eins og alltaf þegar það er gaman. Nóg að gera í kennslunni og ýmsu öðru stússi. Við félagarnir Stulli og Tóti spiluðum á tveimur böllum. Fyrri helgina hjá félagsskapnum Komið og dansið sem er með aðstöðu í Danshöllinni í Mjóddinni, alltaf gaman að spila og syngja þar sem fólk nýtur þessi að dansa. Seinni helgina lékum við svo fyrir dansi fyrir hresst fólk 60+ á Akureyri og þar var nú aldeilis stiginn dansinn líka.
Notaði ferðina inn á Akureyri líka til að líta við á dvalarheimilinu Hlíð þar sem ég flutti ýmis ljóð úr Æskumyndunum mínum, með myndastuðningi, og fékk góð viðbrögð við. Svo fluttum við Stulli nokkur lög fyrir fjöldasöng við góðar undirtektir heimilisfólks og gesta. Annars átti fjölskyldan og starfið hug manns auk þess sem eitthvað var skrifað og skrásett.
![]() |

