22.06.2026 09:42
Skíðafjör og fjölskyldupáskar
Vikurnar 23. mars - 4. apríl liðu hratt. Nóg að gera í kennslunni fram að páskafríi, renndum þá inn á Akureyri að hitta börnin, vinafólk og ættingja. Skelltum okkur á skíði í Hlíðarfjalli í ljómandi góðu veðri og færi. Fengum svo börnin heim um páskana sem var afar ljúft og gott, svolítið skíðað og páskasteikurnar smökkuðust sérlega vel.
Annars tiltölulega rólegt. skrifaði eitthvað af fréttum af venju og sinnti Ljóðasetrinu en ekkert tónlistarbrölt þessar vikur.
![]() |
Skrifað af Þórarinn Hannesson
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 217
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 270472
Samtals gestir: 37377
Tölur uppfærðar: 23.6.2026 03:52:52

