12.07.2026 17:32
Fjölskyldan, flutningar, kvæði og körfubolti
Seinni helmingur maímánaðar var tíðindaríkur og skemmtilegur. Þar ber hæst að Elín Helga, dóttir okkar, og Dabbi hennar fluttu inn í íbúðina sem þau keyptu á Hauganesi. Við fjölskyldan hjálpuðumst að sjálfsögð að við það verkefni, mála og flytja og annað sem þurfti að gera og græja. Skemmtileg og flott raðhúsaíbúð þar sem mun fara vel um þau og erfingjann sem er væntanlegur í ágúst.
Skólastarfinu í Menntaskólanum á Tröllaskaga lauk með vinnudögum og útskrift þar sem 34 nemendur settu upp hvíta kollinn. Ég heimsótti ljóðaklúbbinn á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði og flutti þakklátum hlustendum eigin ljóð og lög. Við hjónin fórum í tvær fermingarveislur, svo var eitthvað um fundahöld og fréttaskrif og ekki má gleyma vorverkunum í garðinum sem voru drjúg.
Mánuðinum lauk með fyrri degi körfuboltanámskeiðs sem ég sá um fyrir Umf Glóa og var það fyrir 4. - 7. bekk. Fín mæting, um 20 áhugasöm börn, og hugmyndin að vera með fleiri slík námskeið í sumar þegar vel viðrar.
![]() |

