Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

Færslur: 2026 Apríl

13.04.2026 16:26

Kvefpest en kátir dagar

Vikan 2. - 8. febrúar var að mestu góð fyrir utan að kvefpestin sem hafði verið að plaga mig og trufla söngröddina varð þausætnari en ég hugði. Fór því til læknis í upphafi vikunnar og fékk steraúða til að vinna á kvikindu, skánaði mér töluvert eftir því sem leið á vikuna sem var gott því enn eitt þorrablótið var á dagskránni í lok hennar.

Þetta þorrablót var í Tjarnarborg á Ólafsfirði fyrir aldurshópinn 60+ og var þar mikil gleði. Við Stulli stýrðum fjöldasöng að venju og reyndum að vera sniðugir, ég steig á stokk með Vorboðakórnum, kór eldri borgara, því fámennt var karlamegin og svo lékum fyrir dansi fram undir miðnætti. Vel heppnað og góð mæting heldra fólks í Fjallabyggð og úr nágrannasveitum.

Í vikunni var einnig afhending menningarstyrkja frá sveitarfélaginu Fjallabyggð vegna viðburða og rekstrar safna og setra árið 2026. Tók ég við þremur styrkjum að þessu sinni. Vegna reksturs Ljóðaseturs Íslands, vegna ljóðahátíðarinnar Haustglæður sem haldin verður í tuttugasta skipti og svo vegna Síldarævintýrisins sem verður haldið um verslunarmannahelgina að venju. Skipta þessir styrkir geysilega mikli máli svo hægt sé að punta upp á mannlífið í sveitarfélaginu. 

Renndum einnig inn á Akureyri til að heilsa upp á börnin og gistum eina nótt.

 

 

08.04.2026 09:20

Þorrablót, kennsla og fjölskyldan

Vikan 26. jan - 1. feb var ljómandi góð að mestu, náði mér að vísu í kvefpest sem hafði áhrif á sönggetuna, annað gott. Kennslan í Menntaskólanum á Tröllaskaga gengur að óskum; alltaf einhver spennandi verkefni þar að fást við. Auk kennslunnar skrifa ég fréttir á heimasíðu skólans, sé um menningarmál og fleira skemmtilegt. Svo var eitt og annað skrifað og skráð m.a. fréttir í Helluna, héraðsfréttablað hér í Fjallabyggð, og fréttir á fésbókarsíður verkefna sem ég tengist.

Þetta var líka góð fjölskylduvika. Einkasonurinn, Patrekur, átti 29 ára afmæli og svo kom yngsta dóttirin, Amalía, og kærasti hennar í heimsókn á Sigló og gistu hjá okkur yfir helgina. Frúin byrjaði með Krílaskóla fyrir yngstu skíðaiðkendurna á skíðasvæðinu og Amalía aðstoðaði. Báðar eins og ballettdansarar á skíðunum!

Við Stulli lékum aðeins á einu þorrablóti þessa viku, en þau voru þrjú í vikunni á undan, að þessu sinni í Skagaseli út á Skaga. Þar sáum við um fjöldasöng milli skemmtiatriða og svo lékum við fyrir dansi fram á nótt. Vegna kvefpestarinnar var röddin frekar tæp og Stulli þurfti að syngja mun meira en venjulega en hann komst vel frá því kallinn. Heilmikið stuð á dansgólfinu að venju og að loknum dansleik var pakkað saman og rennt heim. Veðrið eins og best verður á kosið og var snjókorn á vegum á miðjum þorra, líkt og síðustu tvö ár. 

Frúin dansar á skíðum heart   

 

02.04.2026 16:59

Þrjú þorrablót á einni viku

Vikan 19. - 25. janúar einkenndist af því að Þorrinn var að ganga í garð. Nóg um að vera næstu vikurnar hjá okkur spilafélögunum Stulla og Tóta og byrjað með trukki því við spiluðum á hvorki fleiri né færri en þremur þorrablótum þessa vikuna. Á fimmtudagskvöldi á dvalarheimilinu Hornbrekku á Ólafsfirði þar sem var einstaklega góð stemning. Á föstudegi var haldið í Bárðardal og spilað fyrir sprellfjörugum dansi þar um kvöldið auk þess sem við sáum um fjöldasöng. Þetta var þvílíka fjörið og einn magnaðasti fjöldasöngur sem ég hef heyrt, svei mér þá. Á laugardeginum var svo haldið út á Tjörnes þar sem áfram var haldið; fjöldasöngur milli fjölbreyttra skemmtiatriða og svo spilað fyrir dansi fram á nótt. Það var gott að hvíla röddina á sunnudeginum!

Auk þess var kennslunni að sjálfsögðu sinnt og haft gaman af lífinu. Fyrsta karlakórsæfing ársins var líka á dagskrá og eitt og annað fleira skemmtilegt.

Mynd: Stulli og Tóti á Trilludegi á Sigló

 

 

  • 1
Flettingar í dag: 567
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 139
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 256511
Samtals gestir: 36790
Tölur uppfærðar: 3.5.2026 18:35:57