Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

13.04.2026 16:26

Kvefpest en kátir dagar

Vikan 2. - 8. febrúar var að mestu góð fyrir utan að kvefpestin sem hafði verið að plaga mig og trufla söngröddina varð þausætnari en ég hugði. Fór því til læknis í upphafi vikunnar og fékk steraúða til að vinna á kvikindu, skánaði mér töluvert eftir því sem leið á vikuna sem var gott því enn eitt þorrablótið var á dagskránni í lok hennar.

Þetta þorrablót var í Tjarnarborg á Ólafsfirði fyrir aldurshópinn 60+ og var þar mikil gleði. Við Stulli stýrðum fjöldasöng að venju og reyndum að vera sniðugir, ég steig á stokk með Vorboðakórnum, kór eldri borgara, því fámennt var karlamegin og svo lékum fyrir dansi fram undir miðnætti. Vel heppnað og góð mæting heldra fólks í Fjallabyggð og úr nágrannasveitum.

Í vikunni var einnig afhending menningarstyrkja frá sveitarfélaginu Fjallabyggð vegna viðburða og rekstrar safna og setra árið 2026. Tók ég við þremur styrkjum að þessu sinni. Vegna reksturs Ljóðaseturs Íslands, vegna ljóðahátíðarinnar Haustglæður sem haldin verður í tuttugasta skipti og svo vegna Síldarævintýrisins sem verður haldið um verslunarmannahelgina að venju. Skipta þessir styrkir geysilega mikli máli svo hægt sé að punta upp á mannlífið í sveitarfélaginu. 

Renndum einnig inn á Akureyri til að heilsa upp á börnin og gistum eina nótt.

 

 

Flettingar í dag: 174
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 161
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 266467
Samtals gestir: 37148
Tölur uppfærðar: 30.5.2026 23:18:19