Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

Blog records: 2026 N/A Blog|Month_2

25.02.2026 15:08

Fjölskyldu og félagsmálavika

Vikan 12. - 18. janúar var alveg ljómandi. Kennslan komin í fullan gang aftur í MTR (Menntaskólanum á Tröllaskaga), hugað að daglegri hreyfingu og áttum svo góða fjölskylduhelgi, þó með félagsmálaívafi. Skelltum okkur inn á Akureyri eftir kennslu á fimmtudegi og gistum hjá Patreki syni okkar en hann fór svo í rafvirkjanámið sitt á Sauðárkróki á föstudeginum meðan við Stína renndum á Mývatn þar sem við sátum mjög áhugaverðan fund íþróttahéraða á Norðurlandi eystra sem fulltrúar UÍF (Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar). Gistum svo þar um nóttina. En þetta var nú ekki allt því þennan sama dag skrifaði Elín Helga, dóttir okkar, og Dabbi hennar undir kaup á íbúð í raðhúsi á Hauganesi. Þeirra fyrsta íbúð og hamingjan í algleymi enda erfingi á leiðinni! Íbúðina fá þau afhenta í sumarbyrjun.

Þegar komið var aftur á Akureyri á laugardeginum var hent í matarveislu til að fagna íbúðakaupum og lífinu þar sem dætur okkar, Elín Helga og Amalía, og þeirra unnustar fögnuðu með okkur. Gistum svo enn á Akureyri og síðan haldið heim á Sigló á sunnudeginum eftir góða daga.

Mynd: Lukkulegir nýir íbúðareigendur. 

 

 

 

  • 1
Today's page views: 567
Today's unique visitors: 5
Yesterday's page views: 139
Yesterday's unique visitors: 8
Total page views: 256511
Total unique visitors: 36790
Updated numbers: 3.5.2026 18:35:57