Blog records: 2026 N/A Blog|Month_5
03.05.2026 07:25
Síðasta blótið, sólarkaffi og sviðaveisla
Vikurnar 9. - 22. febrúar voru ljúfar en nokkuð fjörugar. Síðasta þorrablótið okkar Stulla var hinn 14. og var það í Heiðarbæ í Þingeyjarsýslu. Þar var fjölmenni og mikið fjör eins og vera ber og dansað langt fram á nótt við okkar undirleik. Kvöldið áður lékum við fyrir dansi á skemmtilegum viðburði þegar Sólarkaffi Vestfirðinga á Norðurlandi var endurvakið eftir nær tveggja áratuga hlé. Vel sótt og mjög skemmtilegt, ég steig einnig á stokk í skemmtidagskránni og flutti nokkrar af Æskumyndunum mínum. Það var ekki eini ljóðaflutningurinn þann daginn því við Stulli notuðum ferðina inn á Akureyri til að heimsækja dvalarheimilið Hlíð þar sem við stýrðum fjöldasöng auk þess að flytja nokkur ljóð og kveða. Virkilega gaman!
Annars voru þessar vikur helgaðar kennslunni í Menntaskólanum á Tröllaskaga; alltaf nóg um að vera í því starfi, fjölskyldunni; buðum ættingjum og vinum m.a. til sviðaveislu og fjölbreyttri hreyfingu. Auk þess sem ég sat undirbúningsfund að stofnun Ferðaklasa Fjallabyggðar, spennandi verkefni þar á ferð, og sinnti Ljóðasetri, ungmennafélagi og fréttaskrifum.
Mynd frá fjörinu á Hlíð:
![]() |
- 1

