Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

03.05.2026 07:25

Síðasta blótið, sólarkaffi og sviðaveisla

Vikurnar 9. - 22. febrúar voru ljúfar en nokkuð fjörugar. Síðasta þorrablótið okkar Stulla var hinn 14. og var það í Heiðarbæ í Þingeyjarsýslu. Þar var fjölmenni og mikið fjör eins og vera ber og dansað langt fram á nótt við okkar undirleik. Kvöldið áður lékum við fyrir dansi á skemmtilegum viðburði þegar Sólarkaffi Vestfirðinga á Norðurlandi var endurvakið eftir nær tveggja áratuga hlé. Vel sótt og mjög skemmtilegt, ég steig einnig á stokk í skemmtidagskránni og flutti nokkrar af Æskumyndunum mínum. Það var ekki eini ljóðaflutningurinn þann daginn því við Stulli notuðum ferðina inn á Akureyri til að heimsækja dvalarheimilið Hlíð þar sem við stýrðum fjöldasöng auk þess að flytja nokkur ljóð og kveða. Virkilega gaman!

Annars voru þessar vikur helgaðar kennslunni í Menntaskólanum á Tröllaskaga; alltaf nóg um að vera í því starfi, fjölskyldunni; buðum ættingjum og vinum m.a. til sviðaveislu og fjölbreyttri hreyfingu. Auk þess sem ég sat undirbúningsfund að stofnun Ferðaklasa Fjallabyggðar, spennandi verkefni þar á ferð, og sinnti Ljóðasetri, ungmennafélagi og fréttaskrifum.

Mynd frá fjörinu á Hlíð:

 

 

Flettingar í dag: 451
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 139
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 256395
Samtals gestir: 36790
Tölur uppfærðar: 3.5.2026 13:31:36