18.10.2024 16:24
Annir í október
Októbermánuður fer líflega af stað, nóg að gera í hinu blómlega starfi í Menntaskólanum á Tröllaskaga sem og í tónlistar- og ljóðadeildinni og öðrum verkefnum sem tínast til.
Var með kynningu á starfsemi Ljóðasetursins fyrir íbúa og gesti á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík í upphafi mánaðar og auðvitað hljómuðu einhver ljóð og lög líka. Tók einnig á móti tveimur nemendahópum á setrinu og fræddi þá um íslenska ljóðlist og fleira skemmtilegt og brá gítarnum á loft.
Spilaði og söng á hestamannaballi í Svarfðardalnum fyrstu helgina í október með Stulla félaga mínum og var þar mikil gleði. Mundaði einnig gítarinn fyrir hestafólk á Siglufirði og í heimsókn vestur á Bíldudal var spilað fyrir fjöldasöng á árshátíð eldri borgara í Vesturbyggð ásamt félaga mínum Matta. Svo er fleira í pípunum.
Við Matti í góðum gír |