Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

10.11.2025 12:42

Sungið á Óló, Dalvík og Akureyri

Vikan 14. - 20. september var stútfull af tónlist og svo var líka verið að vinna fyrir saltinu í grautinn í kennslunni. Fyrri hluti vikunnar helgarðu kennarastarfinu þar sem allt er komið í fastar skorður og rennur ljúft hjá okkur í Menntaskólanum á Tröllaskaga. Við hjónin líka dugleg að rækta kroppana í ræktinni okkar, hjóla í blíðunni og sinna haustverkum í garðinum.

Tónlistin tók svo yfir seinni part vikunnar. Við Stulli komum fram á Kráarkvöldi á dvalarheimilinu Hornbrekku á Ólafsfirði, fórum með vísur og limrur, stjórnuðum fjöldasöng og lékum svo fyrir dansi. Í hádeginu á föstudag var ég með tónleika í menningatrhúsinu Bergi á Dalvík þar sem ég flutti eigin lög við ljóð norðlenskra skálda. Var vel mætt og stemningin notaleg. Á föstudagskvöldinu lékum við Stulli svo fyrir dansi hjá hressu fólki 60+ í félagsmiðstöð þess aldurshóps á Akureyri. Þar var mikið fjör og dansað frá fyrsta tóni. Við Stína gistum svo á Akureyri og notuðum laugardaginn í ýmsa snúninga. - Myndin er frá tónleikunum í Bergi á Dalvík.

 
Flettingar í dag: 439
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 166
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 195720
Samtals gestir: 34275
Tölur uppfærðar: 10.11.2025 18:49:25