Þórarinn Hannesson - Fréttir af listabrölti og ýmsar upplýsingar
   - flestar óþarfar

Færslur: 2026 Júlí

02.07.2026 06:11

Afastrákur, húsakaup og dansiböll

Vikurnar 5. - 18. apríl voru aldeilis gleðilegar og fjörugar. Sú fyrri var helguð fjölskyldunni og kennslunni. Héldum þessa fínu kynjaveislu hjá okkur á páskadag þar sem í ljós kom að Elín Helga dóttir okkar gengur með dreng, þannig að kynjahallinn á afkomendunum jafnast aðeins. Staðan er þá bara 8 -3 fyrir dömurnar! Ekki nóg með að dóttir okkar ætli að fjölga mannkyninu í sumar heldur festu hún og unnustinn einnig kaup á húsnæði á Hauganesi fyrr í vor svo spenningurinn er mikill. Kennslan hófst svo á þriðjudegi eftir gott páskafrí og lífið fékk sinn hefðbundna takt ef svo má segja. Nýtti páskafríið einnig til að klára spurningahefti nr. 2 um Siglufjörð og Siglfirðinga. Inniheldur það 100 nýjar spurningar um þessi spennandi viðfangsefni.

Seinni vikan var helguð skíðaíþróttinni og þjóðlegum dansleikjum auk kennslunnar að sjálfsögðu. Við Stína skelltum okkur tvisvar á fjallaskíði þessa viku. Skinnuðum vel upp í snæviþaktar hlíðar hér í Siglufirði í rjómablíðu og skíðuðum svo niður; alveg yndislegt! Við Stulli lékum svo á tveimur athyglisverðum og stórskemmtilegum dansleikjum. Sá fyrri var í Miðgarði í Skagafirði þar sem flestir dansgestir mættu klæddir þjóðbúningum og stigu aðallega gömlu dansana og sá síðari var hinn þjóðlegi svarfdælski mars þar sem marserað var með ýmsum tilbrigðum og leikjum. Fór sá dansleikur fram á Rimum í Svarfaðardal.  Ekki var það til að spilla gleðinni að yngsta dóttirin mætti klædd þjóðbúningi í Miðgarð og steig nokkur spor með pabba sínum.

 

 

 

 

 

 

 

  • 1
Flettingar í dag: 191
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 490
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 274825
Samtals gestir: 37562
Tölur uppfærðar: 3.7.2026 05:05:37